Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Zzzzzzzzzzzz

Reynið að sofa minnst 8 tima á dag.

mánudagur, nóvember 13, 2006

Skárrenannaðverra.....



hej aleihoopa!

Var að klára bráðskemmtilega ritgerð í íslenskri tónlistarsögu og ákvað í tilefni af því að nota þessa stund milli stríða og bloga (lesist með linu g-i) aðeins. Ég fékk nefnilega svo skemmtilega frábært símtal í dag frá Saltz nokkurri burg og var þar enginn annar en Mr. Hallmeister á línunni. Hann senst tók sig til og reif í hnakkadrambið á mér í gegnum símtólið, svona aðeins til að hrista upp í kallinum og spurði hvað það ætti að þýða að láta ekkert í sér heyra hvorki né á prenti eður með hljóðum. Mig setti náttúrulega hljóðan við þessa mjög svo verðskulduðu áminningu og þori ekki öðru en að skrifa þessa skýrslu um það að Halli hefði skammað mig fyrir að bloga ekki neitt..(vá, nú er ég svo farinn að skrifa um það að ég hafi verið að skrifa um það að Halli hefði skammað mig fyrir að bloga ekki neitt..((vá, nú er ég svo farinn að skrifa um að ég sé farinn að skr............aaaaarrrghh, nei þetta gengur ekki....maður bullar bara tóma steypu, ja hérna hér....

Það er sem sagt allt æðislegt að frétta af klakanum, haustlægðirnar eru búnar að feykja öllum trampólínum landsins upp á hálendi og jólin eru byrjuð í IKEA og blómaval.

Meira verður það ekki í bili en það verður örugglega styttra þangað til næst........

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Hann lengi lifi.

Mig langar bara að þakka öllum þeim sem tóku þátt með mér og Gumma í að fagna komu Tuborg jólabjórsins á markað síðastliðinn föstudag.
Lengi lifi Veraldarvefurinn, notagildi hans verður seint metið til fulls !