Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

þriðjudagur, janúar 08, 2008

Verið þið allir sælir og blessaðir Matskakingar til sjavar og sveita !!

Hér skrifar Fisher Fiskspiel verndari matarklúbbsins Matskák.

Vil ég byrja á að bjóða öllum meðlimum innilega til hamingju með nýja árið og kærar og innilegar þakkir til þeirra sem virtu nafn mitt og tilbáðu líkneski mitt í formi matargerðar og víndrykkju á síðasta ári. Einnig vil ég þakka vesturförunum sem ætla að heimsækja helgihof mitt að Linzergasse 31 næsta sumar fyrir það og þeim hinum sem sannarlega hafa komið hingað og etið, drukkið og sofið við fætur mér. Síðan þakka ég umsjónarmönnum helgihofsins, húsverðinum, maddömmunni og barni þeirra sem hafa glætt líf mitt gleði og spennu á hverjum degi.

Megi þið öll borða sem mest, þyngjast sem hraðast, lifa óheilbrigðu líferni og forðast hverskyns íþróttaiðkun á þessu nýja ári sem nú er víst hafið.

Og vil ég enda þennan pistil á að segja, sem svo margur innan þessa hóps hefur bæði sagt og svo oft heyrt,


"VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU"

F.F.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Servidor, I hope you enjoy. The address is http://servidor-brasil.blogspot.com. A hug.

8:53 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home