Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

föstudagur, september 15, 2006

Tékkið á þessu

Var að horfa á ÞESSA heimildarmynd um 9/11. Mæli með því að fólk tékki á þessu í góðu tómi. (tekur um einn og hálfan tíma, en er góð skemmtun á föstudagskveldi)

5 Comments:

Blogger anna said...

Já, ég horfði á þessa mynd um daginn og var alveg stórhneigsluð í sjokki og kom varla upp orði þegar hún var búin. Margt þarna innanborðs sem þyrfti alveg að tékka á, ef það væri þá hægt, og hér á bæ var farið á stúfana af veikum mætti á internetinu. Við þá grenslan komumst við hérna að ýmsu, og það sem mér finnst verst er að höfundur og framleiðandi myndarinnar hefur viðurkennt að margt sé allt að því skáldskapur og ýkjur og þá verður erfitt að vinsa úr hverju maður á að trúa og hverju ekki.
Hinsvegar, þá virðist mjög margt vera óútskýrt en ég vildi bara að hann hefði passað sig á því að hafa allar staðreyndir á hreinu og ýkja ekki nokkurn hlut því þá hefði verið svo auðvelt að sýna fram á þær misfellur sem hann virðist vera að reyna að gera. Annars er svo auðvelt að benda á gallana innan þessarar „rannsóknarvinnu“ og það sem ekki er rétt að það skemmir nánast fyrir málstaðnum, ef málstað skyldi kalla.
Kannski hef ég bara svona sterkar skoðanir á þessu því mér fannst svo margt vera sterkt, rétt og óútskýrt þarna að það næstum því pirrar mig þegar maður sér svo að hann hafi viðurkennt að hafa ætlað í byrjun að búa til samsæris-skáldskap um efnið... En kannski er þetta bara snilldar vel gerð heimildarskáldsaga og þá er engin ástæða til að vera annað en ánægður með vel unnið verk af hans hendi :)

Ég veit ekki hvers kyns er...

2:34 f.h.

 
Blogger anna said...

Eða þá að hann fékk þúsund milljón trilljón peninga fyrir að viðurkenna að svona margt væri rangt innan myndarinnar... (,")

;)

2:36 f.h.

 
Blogger Þorri said...

Ég þorði einmitt ekki að kokgleypa allt sem framleiðandi myndarinnar sagði en það eru allt of margir lausir endar sem þyrfti að fá svar við...

4:13 e.h.

 
Blogger anna said...

jább...

5:12 e.h.

 
Blogger anna said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

5:12 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home