Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

sunnudagur, ágúst 13, 2006

jæja,

Þá fer að líða að því að það verði enginn meðlimur matskákar á Íslandinu. Jú, það er rétt, þó aðeins tímabundið sé þar sem að hinir tryggu félagar frá mosfelli, sem nota bene sjá um að halda uppi höfuðstöðvunum, eru líka að fara í lotion og þá verður ísland matskáklaust næstu vikurnar. Hugsið ykkur...

Mig langaði annars til að segja rosalega góða ferð ;) og hafið það alveg ofboðslega gott... og við hugsum til ykkar héðan úr lotion.

Við hjónin ætlum einmitt að fara á ströndina í dag og slaka á eftir brjálæðisleg innkaup síðustu tveggja vikna. Já það er rétt, við erum búin að go nuts og kaupa og kaupa og kaupa allt... (ja, eða allt sem við töldum okkur vanta hér og gátum ekki tekið með). Þar á meðal er rauður leðursófi rrrrrrrrr (ógislega flottur) og litlar, góðar græjur sem hljóma eins og þær séu allavega fjórum sinnum stærri en þær eru.

Hafið það gott öll mín kæru og mikið er gaman að sjá að síða þessi hefur hlotið endurnýjun lífdaga. Hlakka til að heyra í öllum mikið og oft :)

mrs. La Jolla :)

4 Comments:

Blogger Doddy said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

6:14 e.h.

 
Blogger Doddy said...

Hvað er heimilisfang ykkar SanDiegoinga?
Er Hrafninn búinn að leggja heimasíðuna sína niður? Hvar eigum við Gummi þá að segja prumpubrandara og skrá hann í Votta Jehova og hvað með Nevada Bob...?

6:30 e.h.

 
Blogger Árdis said...

gaman gaman að lesa frá ykkur :)
Það er svakalegt til þess að hugsa að Ísland verði Matskákarlaust í heilar 2 vikur - aumingja Ísland....

en það verður sko svakalegt lotion á Matskákarliðum þessar vikur, og við munum líka hugsa til ykkar úr okkar lotion :) þetta verður eitt allsherjar orgíulotin...;)

Bið að heilsa ykkur öllum kæru vinir:)

11:07 e.h.

 
Blogger Doddy said...

Mrs. Raven.
Þótti mér þetta haganlega mælt. Vissulega er heimasíða háttvirtsts Raven´s uppfhhuull afh spjéki og visku, og mikill missir ef síðan myndi hverfa af sjónarsviðinu.
Virðingarfullur, Doddy

2:10 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home