Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

fimmtudagur, september 29, 2005

Einn gamaldax...

Sé það sem sagt að ég er að verða úreltur þar sem ég er ekki með mína eigin bloggsíðu með tilheyrandi fídusum. Kannski maður bæti úr því í bráð. Bendi áhugasömum á bugðubloggið sem er nýr linkur hér á síðunni okkar.

En allavega, þá hef ég verið klukkaður af henni Önnu og þarf því að telja upp fimm ónýt upplýsingaratriði um sjálfan mig. Hér koma þau.

1. Ég er húsmóðirin á heimilinu :-)

2. Ég er algjör sucker fyrir glæpavettvangsrannsóknarþáttum

3. Ég safna jakkafötum og langar alltaf í ný þó svo að þessi gömlu standi fyllilega fyrir sínu.

4. Mér leiðist að tala í síma, finnst skemmtilegra að tala við fólk auglitis til auglitis ef ég er þá að tala á annað borð.

5. Ég spila nánast aldrei tölvuleiki því ég á mjög auðvelt með að verða fíkinn í að spila þá.


Og þá klukka ég Hörpu hér með og vænti þess að sjá ónýtar upplýsingar um hana á bugðublogginu fljótlega.

3 Comments:

Blogger anna said...

heeeeeeeei, það var búið að klukka hörpu og halla...!!! sjá hrafninn... ég hélt það mættiggi klukka mann aftur...

6:30 e.h.

 
Blogger anna said...

flott klukk annars... :) bíð spennt eftir sól hlíf...

6:32 e.h.

 
Blogger Harpa said...

já það eru komnar klukk upplýsingar á bugðubloggið og auðvitað klukka ég
fr. Sól Hlíf

1:21 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home