Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

fimmtudagur, október 14, 2004

SLOPPIN ÚR PRÍSUND!!!!

LOKSINSLOKSINS............
ég er búin í prófunum - þvílík hamingja, hélt á tímabili að ég myni ekki hafa þetta, geðheilsan var ekki alveg í lagi svona rétt undir lokin - vá hvað þetta var erfitt - ég lærði td í gær í rúma 17 tíma með aðeins stuttum klósettfríum og einni gönguferð og talaði við þorra í 1o mín, annars var ég að læra - borðaði meira segja kvöldmatinn inni í herbergi (drykkjarjógúrt, drykkjarskyr orku og trópí ummmmm....)
ss hreinasti viðbjóður.......en núna er þetta búið og það er jafn gaman eins og hitt var leiðinlegt þannig að í raun má segja að þetta hafi borgað sig.........eða e-ð........
en ég er alveg farin að hallast að því að við anna séum að e-u leyti sálufélagar, ég las commentið og þetta var eins og talað út úr mínu hjarta - snilldarskipulag, ánægð með að fleiri en ég vilji búa til reglur um hvernig svona samkundum á að vera háttað:)
mér líst ljómandi vel á að taka sunnudaginn snemma - barasta alveg mjög svo til í það
jæja best að fara að gera ekki neitt.......hahahaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

1 Comments:

Blogger Þorri said...

Hæ hó og klukkan sló.....

Er kominn heim úr reisunni miklu og hlakka ótrúlega til að sjá ykkur öll á morgun. Mér datt í hug að við Árdís kæmum með forrétt og salat með aðalréttinum, hvað segið þið um það?

Ég er sehr ánægður með tillögur stúlknanna að reglum fyrir klúbbinn, er fylgjandi því að þær verði settar í nefnt sem sér um allt svoleiðis, áhugasamir geta skráð sig hér á síðunni.

Er að hugsa um að fara að gera ekki neitt með minni heittelskuðu og láta mig dreyma um kræsingar morgundagsins.

Bless í biiiillliiiiiiiiiiiiiiiiiiii...........

2:04 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home