Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Heisjan peisjan

Halló allir saman !

Allt í skralli, tölvan búin að vera í allsherjar yfirhalningu og við ekki búin að fylgjast með einu né neinu..... en vitið menn, það var allt í lagi því að enginn var búinn að skrifa staf síðan 18. ágúst... HVAÐ Á ÞAÐ AÐ ÞÝÐA ????? Eru allir að leggjast í dvala eða hvað?
Við verðum bara að kippa þessu í liðinn þá... Það líður senn að því að hinn mikli funkgúrú mæti á klakann til að skemmta hinu hressa liði í Matskák og mælst er til að allir meðlimir hins mæta klúbbs, heima og að heiman, taki vel til matar síns, verði jafnvel í emilsambandi og dilli sér eins og mest þeir mega tónleikakvöldið góða 28. ág....
Annars erum við bara að hita upp fyrir framtíðina og hlökkum til að fara til KÖBEN !!!!!


1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já, það væru nú sumir sem myndu skrifa ef þeir gætu... ég bíð enn eftir að síðan bjóði okkur velkomin. Annars held ég bara að meðlimirnir hafi tekið upp samúðarverkfall okkur til handa og þessvegna hafi lítið verið skrifað uppá síðkastið... :) en allt mun þetta á endanum koma með elju og ákveðni,
en... við sjáumst hress á morgun, vinirnir í útlöndum verða að sjálfsögðu með okkur í anda.

8:29 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home