Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

sunnudagur, ágúst 08, 2004

Doddy fær nýtt eyra

Já viti menn. Doddy er nú loksins kominn með eðlilega stórt eyra (reyndar bara hægra eyrað). Málið er að við lentum í mannætu mýflugum hérna á ströndinni eitt kvöldið og erum alveg útbitin, með ógeðsleg kýli hér og þar. Doddy var bitinn illilega í eyrað og nú hefur það blásið út svo það er loksins komið í eðlilega stærð. Verst að þessu fylgir mikill roði og bjúgur svo þetta er heldur áberandi, en gaman engu að síður að sjá hvernig hann liti út með eðlilega stórt eyra. Þess má líka geta að ristarnar á honum tvöfölduðust svo hann gekk undir nafninu hobbitinn í nokkra daga. Þetta er nú sem betur fer allt að ganga til baka.

2 Comments:

Blogger Doddy said...

Hey, það eru nú fleiri en ég sem mættu við því að láta stinga sig í eyrað;)

5:25 e.h.

 
Blogger Árdis said...

Farðu bara út að hlaupa Doddi minn og fáðu þér slurk af vatni - þá batnar þér....:)

5:42 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home