Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

sunnudagur, ágúst 08, 2004

18 krónur mar....

Ég held það nú bara.... miðinn er á 18 krónur til Kóngsins Köben herrar mínir og frúr. Það er alveg á hreinu að fólk stilli nú saman strengi og reyni að ná miðum á þessu gjafaverði, þetta er ekki einu sinni lítill bland í poka, hann er mikið DÝRARI........

Ég verð nú að segja það að ég átti nú ekki alveg jafn spennandi dag og Þorri gæi átti í gær, ég söng nú bara soldið með Halldóru Björgu og Halla mínum og, jú jú við tókum það svo sem upp á band.... :)
Ég vona að húsnæðisleitin hjá okkar ástkæru vinum í Köben (sem við vonandi náum að heimsakja fyrir 18 kr....) en vitiði það að þetta er það sem ég beið mjög spennt yfir að upplifa í Bergen forðum daga, ég dauð öfunda ykkur kæru vinir.
Halldóra Björg er komin með tvær tennur :) en skríður bara aftur á bak, frekar "frustrerandi" fyrir hana greyið :)
Jæja það er best að fara að taka sér stöðu fyrir Köben og 18 krónurnar.......
Bless í bili Harpa skarpa

1 Comments:

Blogger Doddy said...

Rétt hjá þér Harpa mín. Og fyrir 2 krónur í viðbót fáið þið gistingu á dönsku lúxusgólfi og eins mikinn bjór og vísakortið ykkar leyfir ;)

5:15 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home