Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

mánudagur, ágúst 09, 2004

En ég var pantaður hingað.......

Ég er sem sagt búinn að senda Önnu 2 boðskort þess efnis að hún megi gjarnan taka þátt í tjáskiptum okkar en það virðist vera eitthvað pickles í gangi........ ( en þú verður að ath. Anna að boðskortið kemur ekki frá mér, heldur frá blogger heimasíðunni þannig að það gæti verið að það fari í junk mail eða e-ð svoleiðis) .........en ég held ótrauður áfram að senda boðskort þangað til við erum öll sameinuð að nýju :-)

skrítið orð "ótrauður" spurning hvort það sé ó-trauður eða ót-rauður eða kannski bara ótr-auður?

en eníveis VIÐ ERUM Á LEIÐINNI TIL KÖÖÖÖÖBEEEENN :-) :-) :-) :-) sem verður heljarinnar fjör og danaveldi verður aldrei samt eftir það og hana nú.

En nóg af bulli..........ég veit ekki með ykkur en ég ætla að fara að sofa - góða nóóóóóóóóótt...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

jamm, ég bíð bara eftir póstinum, gæti svosem vel verið að ég hafi hent honum með ruslpósti, en nú fer ég röntgenaugum um allan póstinn og athuga vel það sem mér berst. Gaman, saman... þetta er bara hinn skemmtilegasti tjáskiptamáti (aldrei prófað þetta áður sko) gaman að heyra af öllum... jæja er í vinnunni og þarf að farað sinna henni, jamm

8:50 f.h.

 
Blogger Árdis said...

já, ég er alveg sammála þetta er ser skemmtilegur samskiptamáti, það eru líka allir svo virkir, bara alltaf búið að skrifa e-ð nýtt þegar maður kíkir:)

En þorri minn ég hélt að þú hefðir verið farinn að sofa þegar þú skrifaðir þetta.....hmmmm...
mitt atkvæði fer á ót -rauður , mér finnst það lekkert

12:48 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home