Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir :)

Samtalan af sjúkrahúsferðum er orðin 4 síðan á þriðja degi jóla og vonast ég innilega til þess að ekki bætist við þá tölu. Annars líður mér ágætlega þó ég verði nú líklega ekki vinnufær til kennslu í þessari viku.

Hlakka til að sjá ykkur og heyra :)

4 Comments:

Blogger Doddy said...

Gott nýtt ár frú Anna og Co. Hvað er að hrjá þig vinkona?

9:18 e.h.

 
Blogger anna said...

æi, það var (vona að ég geti sagt var) einhver ógeðs blöðrubólgusýking sem ekki vildi láta segjast. Sýklalyf í æð og fullt af töflum og ég fékk að vera með fulla fólkinu á slysó alla aðfaranótt nýársdags, gaman...
heyrumst svo fljótlega elskurnar og hafið það gott ;)

(er annars ekkert sérlega glöð í augnablikinu og við því má finna svar á minni bloggsíðu, skemmtilegt hvernig þetta líka fína ár byrjar)

3:03 e.h.

 
Blogger Doddy said...

Uss, hvaða helvítis...
Vonandi að þú náir þér af þessu og að þessi skólamál reddist. Það hlýtur að gera það á endanum.
Er eitthvað af frétta af skólamálum húsbóndans?

8:08 e.h.

 
Blogger anna said...

það koma engin svör til okkar fyrr en í mars, svo þangað til verðum við bara að vera þolinmóð og já... þetta reddast að sjálfsögðu :) engar áhyggjur af öðru ;)

12:23 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home