Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

sunnudagur, desember 26, 2004

Gleðileg jól allir saman....

jæja þá herrar mínir og frúr

Nú eru jólin gengin í garð með öllu tilheyrandi, mat, pökkum og bráðum ofboðslegum sprengjum. Við hjónakornin ásamt litla maurnum okkar erum í ofboðslegum rólegheitum norður í landi þar sem svefn og matur er það eina sem kemst að. Við viljum bara þakka fyrir skemmtilega kvöldstund í kakóboði Matskákar og legg ég til að þetta verið hér með gert að árlegum og ómissandi viðburði í aðdraganda jólanna !!!!!
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og magnaðra áramóta þar sem við sjáumst ekki fyrr en á nýju ári.

Bestu jóla og nýárskveðjur

Harpa skarpa og Co.

1 Comments:

Blogger Þorri said...

Já gleðileg jól öllsömul, Við erum svo sannarlega búin að hafa það meget godt um jólin, erum búin að liggja í leti undanfarna 2 daga og gera ekki neitt nema að éta mat, éta mat, éta, éta maaaaaaaat..... voða gott. Erum nú stödd á nýja heimilinu og ég var að koma okkur upp nettengingu sem virkar svona líka fínt. jæja er annars á leiðinni í jarðarför. Hittumst heil á nýju ári og ekki sprengja ykkur í tætlur. kv. Þorri litli

2:27 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home