Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

bara 1 vika Við erum að tala um SJÖ DAGA!!!

Já nú eru aðeins sjö dagar þangað til 3/4 matskákmeistaranna verður að raða í sig skonsum og smörrebröd í danaveldi og spennan er í hámarki... við erum að tala um að ég er hættur að sofa á nóttunni ( og farinn að sofa á daginn.... ekki spyrja mig af hverju...).

Annars hefur lífið gengið sinn vanagang undanfarið og búið að vera þétt stemning. Foreldrar mínir, þ.e.a.s. heimsins besti hljóðmaður og frú, héldu upp á SEXTUGS afmæli sín á föstudaginn var og þá var heljarinnar partý með kaffi og Súkkulaðitertu a'la Mamma og svaka stuð.

Daginn þar á undan vorum við svo í sjötugsafmæli hjá föðursystur hennar Árdísar þannig að tugirnir hafa aldeilis hrannast upp undanfarið.

Jæja nú er mín heittelskaða komin heim úr skólanum og ég ætla að fara að gefa henni e-ð gott í gogginn.

sjáumst í Köben og heyrumst vonandi fyrr :-)

1 Comments:

Blogger Doddy said...

Jå thad munar ekki um thad, bara 7 dagar fra og med... NUNA...!!! Talandi um thad, hvenær lendid thid og svo videre... Thid hjonin ætlid ad gista einhverstadar annarstadar ekki rett? Ekki thad ad thid seud ekki velkomin, bara ad tjekka å ferdaåætluninni.
Innilega til hamingju med herra og fru hljodman, kær kvedja til theirra.
Verda upptøkurnar okkar med i før...? Ekkert små sem okkur langar ad heyra thær?

4:18 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home