Hvað er? Matarklúbbur, stofnaður 27. júlí 2004. Meðlimir eru á víð og dreif um heiminn og er þetta samskiptavettvangur þeirra.

fimmtudagur, maí 26, 2005

Hin næsta skák...

Fer ekki að koma tími á skáksamkomu? Mér datt í hug svo sem þarnæsta helgi? Eða þarþarnæsta...
Allavega legg ég til að við höfum þessa skák til heiðurs Bobby Fischer, Boris Spassky og co. Þeir eru með slembiskák, en við gætum verið með þambiskák, eða vambarskák (eða mambóskák eða......)... [eða Rambóskák...]

Hvassegiði?

1 Comments:

Blogger Þorri said...

Vér skötuhjúin erum gjarnan til í skák þann 3. eða 4. júní. Ég fer sjálfur til Írlands þann 10. júní og verð þar yfir helgi að kanna þrælsrætur íslendinga en er opinn fyrir góðum hugmyndum og jafnvel höggmyndum....... kv. Þorri

8:29 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home